27.12.2007 13:03:34 / nidjamot

Jólaboðið

Sæl og blessuð

Síðan er ekki alveg sofnuð, verðum að segja frá jólaboði og setja svo inn myndir af liðinu að gúffa í sig kræsingunum...

Jólaboðið í Ásgarðsfjölskyldunni verður haldið að Klausturhvammi 13 - á sama stað og í fyrra.

Hver og einn kemur með eitthvað gómsætt til að leggja á veisluborðið.

Gott að dreifa þessu svo ekki verði of lítið af mat og of mikið af kökum eða öfugt. Segið til hvað þið komið með (takið einnig þátt í nýrri könnun á síðunni) og fylgist með í "sagt sína skoðun" hér á síðunni.

Ég sjálf ætla að leggja til danska skinku með tilheyrandi "ananösum" og sveskjum.....

Jólakveðja

Þura Ó


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 13:09:11 / nidjamot

Fleiri afmæli

Ester best er á afmæli í dag! Og krúttið hún Sæunn Helgadóttir á afmæli sama dag og amma og verður 2ja ára, sjá myndaalbúm hér neðst til hægri.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 12:17:41 / nidjamot

Diddamma sjötug

Síða þessi hefur legið í láginni frá því niðjamótið mikla var haldið í ágúst/sept. á þessu ári. Það var aldrei ætlunin að halda henni lengur úti. En þar sem Diddamma verður sjötug 22. nóvember er ekki hægt annað en óska henni hjartanlega til hamingju hér á alheimsinternetinu þótt hún líti ekki út fyrir að vera degi eldri en 62ja. Öll höfum við átt góðar stundir með Diddömmu, heyrt hláturinn hennar og fílað húmorinn að ógleymdum eftirhermunum sem hún er fræg fyrir (s.s. snjáldurmús og vatnsbuna). Þá ber að nefna snilldarkleinur sem halda nafni hennar á lofti um eilífið og steinbít í brúnni sósu með lauk, sérhannaðar lopapeysur og plögg sem ylja barnabörnunum auk einlægs áhuga hennar, velvilja og væntumþykju í garð okkar allra. Húrra fyrir Diddömmu!

Tíminn líður hratt og Skúli er nýorðinn sjötugur. Þessi teinrétti og loðbrýndi maður með brúnu augun og fastar skoðanir (s.s. NEI), alltaf tilbúinn að segja sögur og kenna manni hvað það er sem gefur lífinu gildi: útivera á Langanesi, svartfuglsegg og lýsi. Og Óli orðinn sjötugur, andskotans helvíti.

Enn er grár ullarjakki af frekar stórum karlmanni (sennilega ekki úr okkar ætt) í óskilum frá niðjamóti og í hægri vasa forláta leðurhanskar. Kvikmyndagerðin stendur enn yfir en vonir standa til að myndin verði tilbúin á næstu dögum þar sem þetta verður væntanlega jólamyndin í sambíóunum.

Þegar tilkynnt verður um næstu nefnd formlega hér á síðunni mun hún væntanlega leggjast í dvala þar tilá næsta ættarmóti.  Þakka þeim sem hlýddu.

Steinunn Inga


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 20:17:08 / nidjamot

Nýjar myndir

 

Alltaf svo myndarleg!

 

 Hér neðarlega til hægri á síðunni eru myndirnar frá Unni (sjá Myndir: Unnur paparazzi). Nokkrar eru teknar eftir miðnætti en enn þykja sumir hafa sloppið vel svo óskað er eftir fleiri heimildarmyndum frá þeim tíma. Enn lifir mótið þó í hugskotinu. Gerð kvikmyndar af mótinu er á lokasprettinum.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 15:51:08 / nidjamot

Eftir miðnætti

Von er á fleiri myndum bráðlega en Unnur paparazzi lumar á nokkrum góðum. Fylgist með... Sendið endilega myndir, engar myndir teknar eftir miðnætti hafa birst ennþá. Ný könnun komin hér á síðuna, látið skoðun ykkar í ljós!

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 13:32:00 / nidjamot

Bókhaldið

Nú hafa útreikningar farið fram og geta þeir sem þess óska fengið að að sjá bókhaldið. Mjög margir lögðu til úr eigin vasa og ber þeim að þakka. Þegar verð fyrir gistingu og mótsgjald var ákveðið var haft í huga að betra væri að áætla ríflega í stað þess að einhver stæði uppi í skuld eftir ættarmótið. Komið hefur í ljós að við eigum 31.200 krónur í sjóði sem ákveðið var að láta renna til Krabbameinsfélags Norðausturlands.

Öllum gögnum verður haldið til haga fyrir næstu nefnd. Með sól í sinni og sól í hjarta, þakka ég ykkur fyrir afar yndislega helgi !

ÞÓ

P.s. Tillögur óskast að fulltrúum í næstu nefnd sem verður annars skipuð með handafli.


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 20:43:16 / nidjamot

Verða þessi í næstu nefnd?

 

Þórhallur   Þorbjörg Jóna

Gunnlaugur   Borghildur

Ljósm. Brynjar Ágústsson. Sjá stærri myndir:

Þórhallur

Þorbjörg Jóna

Gunnlaugur Berg

Borghildur

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 10:30:53 / nidjamot

Myndir

\Mikið stuð

Hér eru nokkrar myndir af niðjamótinu mikla:

http://www.flickr.com/photos/12254277@N02

Myndirnar eru á 4síðum, hægt að fletta neðst. Smellið á mynd til að sjá hana stærri og smellið á All sizes (lítill texti fyrir ofan myndina) til að sjá hana enn stærri. Bakka svo til baka. Endilega skrifa "comment".

Fleiri myndir verða birtar bráðlega.

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 11:06:21 / nidjamot

Hópmyndir

The Canadians

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

The Canadian guests of honour were both nice and friendly.

 

Skúla-leggur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fríður flokkur. Skúli, sjálfur ættarlaukurinn, var fjarri góðu gamni og Þorsteinn líka. Þeirra var saknað verulega.

 

Diddu-leggur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stór hópur (ekki í merkingunni hávaxinn). Á myndina vantar Þórunni og Unnar Hafberg, Unnar Aðalstein og fjölskyldu og Einar Odd ásamt unnustu sinni. Helgi Mar í Lúxembúrg.

 

Óla-leggur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einvalalið. Þorsteinn var erlendis en skálað var fyrir honum. Steinn, Óli Ægir og Þorsteinn Vilberg mættu ekki og fá mínus í kladdann.

 

Jónu-leggur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Glæsilegur hópur og mesta ómegðin. Yngstu niðjarnir vafðir í sængur og teppi. Drengur og Hildur Ása voru stungin af þegar myndin var tekin.

 

Lillu-leggur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Náttbuxur og fangapeysur virðast vera einkennisbúningar í þessari fjölskyldu. 100% mæting!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 21:44:21 / nidjamot

Allir komnir heim

eftir skemmtilega helgi. Eitt fellihýsi varð eftir í Norðurárdal, Sossa skrönglaðist á bremsulausum bíl og Steinunn gleymdi sér í berjamó við Borgarvirki. Grár karlmannsjakki með leðurhönskum í vösunum er í óskilum hjá Steinunni. Von er á myndum frá niðjamótinu á næstu dögum (ritskoðuð útgáfa), fylgist með á síðunni!

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 12:49:05 / nidjamot

Loksins!

Þá er loksins komið að því, liðamótið hefst í dag og ættræknin er í algleymingi. Vefnefndin biður ættingja og vini, nær og fjær, að fara varlega á vegum úti. Munið reiðufé og rúmfatnað, hlífðarföt og hamingjubros. Sjáumst öll hress og kát á Steinsstöðum þar sem stuðið verður.

Nefndin


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 20:57:32 / nidjamot

Á toppnum

Hvar í andsk. eru þær eiginlega?

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 20:45:32 / nidjamot

Á tröppunum

 

Sumardagur á Vopnafirði       Amma og Þura Ó


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 20:42:39 / nidjamot

Óðal feðranna

Til að koma stemningunni af stað er hér mynd sem tekin var á Læknesstöðum fyrir tuttugu árum.

 

Hver er þetta í lopapeysunni?


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4